Fara í efni
baldvin.isReykjavík

ÍvarBaldvin.

Ég fæst við hljóð, tónlist, tækni og ýmislegt sem ég ætlaði upphaflega bara að skoða aðeins.

64,15° N — 21,94° VÁfram

Í stuttu máli

Ég bý í Reykjavík, vinn við hljóð og kennslu og hef óeðlilega mikinn áhuga á því hvernig hlutir virka. Sérstaklega því sem enginn annar nennir að spá í.

Mér líður best þegar eitthvað flókið verður einfalt. Hvort sem það er hljóðblöndun sem loksins situr, net sem hættir að detta út eða lítið forrit sem sparar mér tíu mínútur á dag. Sem ég eyddi auðvitað þremur kvöldum í að smíða.

Ég kann að meta góða hönnun, snjalla verkfræði, tónlist, þurran húmor og hluti sem virka eins og þeir eiga að gera. En ég hef líka ákveðinn veikleika fyrir hugmyndum sem eru svo fáránlegar að það væri synd að prófa þær ekki.

Það sem ég fikta í

  • 01Hljóð

    Upptökur, hljóðsetning, eftirvinnsla og endalausar vangaveltur um hluti sem flestir heyra ekki einu sinni.

  • 02Tónlist

    Og lúðrasveitir sérstaklega. Það er eitthvað við tuttugu blásara sem anda inn á sama tíma.

  • 03Tölvur og netkerfi

    Ég hef óþarflega gaman af því að láta tölvur tala saman. Sérstaklega þegar þær neita því fyrst.

  • 04Tækni og öryggi

    Snjallar lausnir, góð kerfi og hæfilega mikil tortryggni gagnvart öllu sem er tengt internetinu.

  • 05Kennsla

    Besta leiðin til að skilja eitthvað er að reyna að útskýra það fyrir öðrum. Stundum lærir kennarinn mest.

  • 06Sjálfvirkni og gervigreind

    Ef ég geri sama hlutinn þrisvar smíða ég verkfæri. Svo laga ég verkfærið. Svo fæ ég hugmynd að öðru.

Segðu hæ

ivar@baldvin.is

Tölvupóstur virkar best. Ég svara yfirleitt. Fyrr eða síðar.